Biking Viking fær rendur
Riding Iceland sameinast Biking Viking
Biking Viking í Visordown tímaritinu Eins og allir Íslendingar vita er lítið mál að hjóla að næturlagi yfir hásumarið en það þótti ritstjóra Visordown í Bretlandi spennandi tilhugsun. Hann heitir John Cantlie og heimsótti okkur í júní til að taka þátt í Longest Day túrnum. Hann fór með okkur út á Reykjanes og upp að rótum Langjökuls þar sem við áðum þegar klukkuna vantaði tvær mínútur í miðnætti, en það var einmitt titill greinarinnar í blaðinu, sem nær yfir rúmar þrjár opnur. Biking Viking opnar mótorhjólaþjónustu Biking Viking hefur opnað mótorhjólaþjónustu að Langholtsvegi 111 í Reykjavik. Verkstæðið er vel búið til að þjónusta ferðahjólin sem og önnur mótorhjól. Við höfum langa reynslu af BMW hjólum og bjóðum upp á tölvulestur á þeim sem og alla hefðbundna þjónustu, frá dekkjaskiptum til vélaviðgerða. Breytingar fyrir árið 2009 Árið 2009 er ellefta ár Biking Viking nafnsins og í ár höfum við bætt við fimm ferðum í samvinnu við World of BMW í Bretlandi. Tvær ferðanna eru alveg nýjar og tvær verða hálendisferðir með hinum fræga Dakar keppnismanni, Simon Pavey, en hann er einnig þekktur fyrir að hafa þjálfað Ewan McGregor og Charley Boorman fyrir ferð þeirra kringum hnöttinn. Síðast en ekki síst verður eins kvennaferð á dagatalinu og verða leiðsögumennirnir einnig konur í þeirri ferð.
|


Biking Viking mótorhjólaleigan hefur pantað tíu eintök af nýju Triumph Tiger 800 og 800XC hjólunum. Hjólin eru væntanleg í maí og bætast við flota Biking Viking af BMW F650 GS hjólum. Auk þess er Biking Viking nú þjónustuverkstæði fyrir Triumph mótorhjól á Íslandi svo að Triumph eigendur geta nú fegnið almenna þjónustu, tölvulestur og gert allar pantanir hjá Biking Viking.






